Sæl hjúkka.mig langar gefa ráð ef ég get varðandi sárið á þessum unga manni.Mér finnst líklegt að þú notir góðar og réttar umbúðir , það er sennilega ekki orsökin fyrir því að þetta ekki grær. Þú segir ekkert um hvort einhverntíma sólahringsins sé þrýstingur á hælinn eða hvort maðurinn sé í hjólastól með fótinn niður löngum stundum.Ég sá í Eirbergi hlíf fyrir hæla,þá er ég að meina rennu eða hring (sem smeigt er utan um okklann) sem lyfta hælnum frá undirlaginu og koma í veg fyrir þrýsting á hælinn.Það er mikilvægt að setja kodda undir hnéð og að stuðningshlýfinni hvort sem það er svamprenna eða hringur.Á flestum hjólastólum er hægt að fótafjölinni og og minka þannig hættu á bjúgsöfnun og bæta blóðflæðið. Bakvið hvert sár sem ekki grær er einhver orsök leitaðu að henni.Mér þótti líklegast að það væri þrýstingur eða bjúgur í þessu tilviki.Gangi þér vel.kveðja Herborg.