Welcome to Umræðusíða SumS Sign in | Join | Faq

Sár og sárameðferð

Started by Hjúkka at 10-30-2005 14:10. Topic has 3 replies.

Print Search
Sort Posts:    
   10-30-2005, 14:10
Hjúkka is not online. Last active: 10/30/2005 11:05:15 PM Hjúkka

Top 10 Posts
Joined on 10-30-2005
Posts 2
LEGUSÁR
Reply Quote
Er að vandræðast með þrýstingssár á hæl á ungum manni. Nú bráðum liðin 2 ár frá því hann fékk sárið í legu eftir aðgerð. Ýmislegt verið prófað en ekkert gengur. Hvað er til ráða?

   Report 
   11-01-2005, 6:55
herborg is not online. Last active: 3/23/2006 8:49:35 PM herborg

Top 10 Posts
Joined on 11-01-2005
Posts 2
Re: LEGUSÁR
Reply Quote

Sæl hjúkka.mig langar gefa ráð ef ég get varðandi sárið á þessum unga manni.Mér finnst líklegt að þú notir góðar og réttar umbúðir , það er sennilega ekki orsökin fyrir því að þetta ekki grær. Þú segir ekkert um hvort einhverntíma sólahringsins sé þrýstingur á hælinn eða hvort maðurinn sé í hjólastól með fótinn niður löngum stundum.Ég sá í Eirbergi hlíf fyrir hæla,þá er ég að meina rennu eða hring (sem smeigt er utan um okklann) sem lyfta hælnum frá undirlaginu og koma í veg fyrir þrýsting á hælinn.Það er mikilvægt að setja kodda undir hnéð og að stuðningshlýfinni hvort sem það er svamprenna eða hringur.Á flestum hjólastólum er hægt að fótafjölinni og og minka þannig hættu á bjúgsöfnun  og bæta  blóðflæðið. Bakvið hvert sár sem ekki grær er einhver orsök leitaðu að henni.Mér þótti líklegast að það væri þrýstingur eða bjúgur í þessu tilviki.Gangi þér vel.kveðja Herborg.


   Report 
   11-02-2005, 15:07
Hjúkka is not online. Last active: 10/30/2005 11:05:15 PM Hjúkka

Top 10 Posts
Joined on 10-30-2005
Posts 2
Re: LEGUSÁR
Reply Quote
Ég þakka svarið. Þessi ungi maður er með fulla hreyfigetu. Hann er með sérútbúna skó til að hlífa hælnum. Einnig er hann með spelku sem hann notar á nóttunni til að koma í veg fyrir þrýsting á sárið. Áður en ég kom að þessu máli er búið að prófa a.m.k. saltvatnsgrisjur, hydrocolloid umbúðir, aquacel, grasakrem, vaselíngrisjur, lasermeðferð, sýklalyfjameðferðir og sárahreinsun hjá lýtalækni. Ég er e.t.v. að leita eftir töframeðferð sem er ekki til?

   Report 
   11-10-2005, 4:29
herborg is not online. Last active: 3/23/2006 8:49:35 PM herborg

Top 10 Posts
Joined on 11-01-2005
Posts 2
Re: LEGUSÁR
Reply Quote
Sæl hjúkka fyrirgefðu að ég skildi ekki þér straks.Ég held áfram að hugsa hvort það sé þrýstingur á sárið þá kanski af næturspelkunni.Það er ástæða til að halda áfram að leita að orsökinni fyrir því að sárið ekki grær.Hugsanlega væri ástæða til að láta æðaskurðlækni líta á þetta.Þessi tími er orðin of langur.Ef þú villt er þér velkomið að hringja í mig í síma 5346057,Maður sér oft lausnir þegar maður saman veltir hlutunum fyrir sér. Kveðja Herborg
   Report 
Umræðusíða SumS » Umræður » Sár og sárameðf... » LEGUSÁR

Powered by Community Server, by Telligent Systems